24.9.2010 | 11:55
Framtíðarsýnin!
Mig langar að henda inn fyrstu bloggfærslunni minni á þessu bloggi, skrifaðri í ágúst 2007, í tengslum við þessa frétt: http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2007/08/17/aldrei_fleiri_a_laugardalsvelli/
Það er ekki laust við að ég fái hroll!
Kynþátta- og aðrir fordómar á Íslandi
Ég er guðslifandi fegin að Pólverjar líkjast okkur Íslendingum afar mikið í útliti. Þetta skal ekki skiljast sem svo að ég hafi nokkuð út á fólk sem ekki líkist okkur að setja. Við erum öll fædd allsber og organdi; rík, fátæk, svört, hvít, brún, rauð, gul eða hvaða lit regnbogans hefur verið smellt á okkur til að hægt sé að skilgreina okkur út frá einhverju sem engu máli skiptir. Önnur saga. Aftur að Pólverjunum. Upp er komin leiður vani í þjóðfélaginu. Heyrist á kaffistofum fyrirtækjanna stórkarlalegur rómur: "HVABARA FÁ PÓLVERJA Í DJOBBIÐ, KOSTAR SKÍTOGKANIL, SPOTTPRÍS" og þar fram eftir götunum (stórkarlinn eða viðmælandi hans er að sjálfsögðu að byggja eða breyta, eitthvað þarf hann nú að gera við þennan pening sinn). Útlendingar kallast svo einu nafni "Þetta Fólk" og er víst afskaplega gott að hafa í vinnu. Fordekruð og rík þjóðin kann og getur ekki lengur skeint sér sjálf og þarf annað fólk í djobbið. Á hálfvirði. Nú komum við að vandamálinu. Hvað gerist þegar við fáum skellinn? Bólan springur og við taka erfiðleikar og við okkur blasir atvinnuleysi. Við endurfinnum hæfileikann til að þerra munnvikin, hysja upp um okkur buxurnar og borga útsvar. Þá er "Þetta Fólk" hér enn, börnin þeirra að vaxa úr grasi og skjóta rótum. Upp munu hefjast háværar raddir um að nú megi það fara aftur heim, en þetta "heim" mun þá vera Norðlingaholtið, Vellirnir og og Úlfarsfell. Mun það gleymast að á sínum tíma hefði allsgnægtasamfélagið kolfallið um sjálft sig hefði þessa fólks ekki notið við? Mun það gleymast að þetta fólk hefur borgað sína skatta og eigi jafnan rétt á bótum og þjónustu og "Við"? Eflaust. Og litla stolta þjóðin leitandi að vinnu myndi ekki höndla það ef á okkur væri sjánlegur munur. Ef Pólverjar væru grænir væri nefnilega hægt að miða þá út, kýla þá niður og bíta af þeim eyrað niðrí miðbæ á laugardagskvöldi.
FRAMTÍÐARSÝN?
Eða sjáum við þetta fyrir okkur fyrr en varir? Við hverju má búast af fólki sem stendur tugþúsundum saman á íþróttavelli og hyllir gamlingja færða í stílfærðar Hitler-Jugend múnderingar syngjandi um bankaræningjan Svarta-Pétur hengdan upp í næsta tré til að fullnægja réttlætinu, bjóðandi heiðursgestinum Gesta-Bó upp á svið?
|
Starf Jussanam er sérhæft |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
1.6.2010 | 17:03
Geometrísk náttúra?
|
Óhugnanleg hola gleypti hús |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
1.11.2007 | 23:25
hættuleg fáfræði
14.9.2007 | 14:29
Fyrstur?
|
Hótar að hálshöggva Britney og Madonnu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
3.9.2007 | 15:15
Afsakið ónæðið
3.9.2007 | 14:24
GETUR EINHVER ÚTSKÝRT ÞETTA FYRIR MÉR?
Ég vísa hér í tvær fréttir um vegaframkvæmdir. Í báðum er talað um vegaframkvæmdir á Reykjanesbraut. Ég er alveg rugluð í ríminu! Er Reykjanesbrautin vegurinn sem liggur milli Hafnarfjarðar og Breiðholts (fram hjá Smáralindinni og IKEA), eða er Reykjanesbrautin vegurinn til Keflavíkur og upp á völl? HJÁLP!!!
|
Vegaframkvæmdir á Reykjanesbraut |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
3.9.2007 | 14:22
GETUR EINHVER ÚTSKÝRT ÞETTA FYRIR MÉR?
24.8.2007 | 16:40
Já!
|
Eftirlátar konur lifa skemur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.8.2007 | 15:25
Leikskólalög
|
Miklar umræður um þvagleggsmálið á bloggvef mbl.is |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.8.2007 | 14:12


malacai
agustolafur
gattin
zoa
alit
hallarut
markusth
nanna